Kæru félagar.
Nú er komið að Þorrablóti 2020. Verður það haldið 8. febrúar í Rúgbrauðsgerðinni Borgartúni 6.
Vandaðar veitingar verða í boði og verði á barnum er stillt í hóf.
Reynir Jónasson mun spila af alkunnri snilld á nikkunna yfir borðhaldi og svo verður hljómsveitin Omotrack með létta danstónlist fram eftir kvöldi.
Veitt verður í merktu staupin að venju.
Húsið opnar kl 19:00 og matur hefst kl 20:00.
Miðaverði er stillt í hóf, aðeins 6.000.- krónur fyrir félaga Fornbílaklúbbsins og gesti þeirra.
Miðapantanir í síma 694-2912 en þar svarar Kristín Sunna Sigurðardóttir. Takmarkað framboð miða. Miðasölu lýkur miðvikudaginn 5. febrúar.
Hægt er að greiða miða bæði með greiðslu í banka eða með símgreiðslu (kreditkort).
Bankaupplýsingar:
0135-26-000929
kt 490579-0369
Tilvísun: Þorri