Gjaldskrá fyrir steðjaplötur
Fyrir félaga Fornbílaklúbbsins
20.000 kr. fyrir sett
15.000 kr. fyrir staka plötu
Almennt verð
30.000 kr. fyrir sett
25.000 kr. fyrir staka plötu
Stærð númera (öll eru 130mm há):
1-3 breiðir tölustafir 310mm löng. Dæmi R-234
4 breiðir tölustafir 375mm löng. Dæmi R-2345
5 breiðir tölustafir 440mm löng. Dæmi R-23456
Hægt er að hafa fleiri stafi á minni plötu ef númer hefur tölustafinn 1 .
Dæmi um 4 tölustafi á 3ja tölustafa plötu væri R-1234 osfrv
Smíðadagskrá
Við smíðum einusinni í hverjum mánuði og er pöntunum hvers mánaðar safnað saman og afgreitt í fyrstu viku næsta mánðar.
Dæmi; allar pantanir maímánaðar eru afgreiddar í fyrstu viku júní.
Júlí og ágúst, eru frímánuður. Pantanir sem berast í frímánuðum eru afgreiddar í september.
Númer verða ekki framleidd nema greiðsla hafi borist.
Númer eru aðeins afgreidd til Samgöngustofu.
Reikningur:
0135-26-000530
kt 490579-0369
Sendið afrit af greiðslukvittun á gjaldkeri@fornbill.is
Undanfarin ár hefur Fornbílaklúbbur Íslands framleitt svokölluð steðjanúmer, en klúbburinn keypti á sínum tíma mót og annað þegar þessi eldri númer voru lögð niður og núverandi númerakerfi tekið upp. Nokkur ár tók að fá leyfi til að framleiða og eins að eldri bílar fengju að bera þessar númeraplötur, en leyfi fékkst árið 2002. Mikill metnaður er hjá mörgum fornbílaeigandanum að bíll hans skarti réttum númerum miðað við aldur bílsins. Mörg númer hafa verið endurvakin sem lengi hafa verið í fjölskyldu viðkomandi, eða þá að viðkomandi bíll fær sitt upprunalega númer aftur. Þeir bílar sem eru framleiddir eftir 1950 til ársins 1989, er nýja kerfið var tekið upp, hafa leyfi til að bera steðjanúmer.
Almennar upplýsingar um notkun fornmerkja má finna hér.
Athugið bílar sem eru skráðir eftir 31.12.1988 geta EKKI fengið steðjanúmer !
Pöntunarferill
1. Skoða þarf hvort viðkomandi númer sé laust, hægt er að skoða hvort viðkomandi númer sé laust hér á vef Samgöngustofu, en sú skrá er ekki alltaf rétt og ítrekað er að panta EKKI númer fyrr en búið sé að taka það frá hjá Samgöngustofu. Eyðublaðið sem þarf að fylla út og fara með á næstu skoðunarstöð eða til Samgöngustofu má finna hér.
2. Næst þarf að skrá viðkomandi númer hjá Samgöngustofu með þessu eyðublaði á viðkomandi bíl.
3. Panta númeraplötur hjá okkur með því að smella á takkann hér fyrir neðan og fylla út umsóknina og millifæra greiðslu í heimabanka. Sé pantað fyrir 25. hvers mánaðar er pöntun afgreidd í byrjun næsta mánaðar (júlí og ágúst eru frímánuðir og er ekki smíðað í þeim).
Ath. Kennitala þess sem pantar þarf að passa saman við þann sem er skráður eigandi viðkomandi bíls, nema að eðlilegar skýringar komi til, t.d. vegna gjafa (enda séu þá til tengls t.d. sama heimilisfang). Ábyrgð liggur hjá okkur að passa að rétt númer séu afgreidd til réttra aðila.
4. Greiða verður með millifærslu í banka áður en númer eru framleidd. Vinsamlega takið fram í skýringu með færslu áletrun númers.
5. Eftir að númeraplötur hafa verið framleiddar fær viðkomandi tölvupóst um að þær hafi verið sendar til Samgöngustofu í Reykjavík. EKKI ER HÆGT AÐ FÁ NÚMER SEND BEINT Á SKOÐUNARSTÖÐVAR.
6. Skráður eigandi númeraplatanna verður því næst að hringja í Samgöngustofu og óska eftir því að þær verði sendar á þá skoðunarstöð sem hann á viðskipti við.
7. Mæta á skoðunarstöð og skipta út númeraplötum.
Þessi númer voru í gildi frá 1938 – 31.12.1988
A – Akureyrarkaupstaður og Eyjafjarðarsýsla
B – Barðastrandasýsla
D – Dalasýsla
E – Akraneskaupstaður
F – Siglufjarðarkaupstaður
G – Hafnarfjarðarkaupstaður og Gullbringu- og Kjósarsýsla
H – Húnavatnssýsla
Í – Ísafjarðarkaupstaður og Ísafjarðarsýsla
J – Íslenskir starfsmenn á Keflavíkurflugvelli
K – Sauðárkrókskaupstaður og Skagafjarðarsýsla
L – Rangárvallasýsla
M – Mýra- og Borgarfjarðarsýsla
N – Neskaupstaður
Ó – Ólafsfjarðarkaupstaður
P – Snæfells- og Hnappadalssýsla
R – Reykjavík
S – Seyðisfjarðarkaupstaður og Norður-Múlasýsla
T – Strandasýsla
U – Suður-Múlasýsla
V – Vestmannaeyjakaupstaður
X – Árnessýsla
Y – Kópavogur
Z – Skaftafellssýsla
Þ – Þingeyjarsýsla
Ö – Keflavíkurkaupstaður
Sérnúmer fyrir starfsmenn Varnarliðsins:
JO – Erlendir starfsmenn á Keflavíkurflugvelli
VL – Varnarliðið
VLE – Ökutæki hermanna