Stjórnarfundur mánudaginn 24.2.2020. K. 17.15
Mættir, Björn, Ómar, Bjarni, Guðný, Stefán, Gunnar Kristín og Sigurður.
Fundur þessi er stuttfundur og keyrt er á milli nokkura fasteigna til að skoða fyrir FBÍ, með það fyrir augum að kaupa til nota sem félagsheimili.
Skoðuð voru þrjú möguleg húsnæði, tvö í Lindum í Kópavogi og eitt á Smiðjuvegi.
Stjórn list best á annað húsnæðið í Lindum, með tilliti til ástands þess.
Stjórn heimilar gjaldkera að kanna hugsanlegt kaupverð á þessari eign með kauptilboð í huga.
Kauptilboð yrði klárlega ekki gert nema með fyrirvara um samþykki félagsfundar.
Stjórn er þessu samhljóða samþykk, annar varamaður stjórnar er þessu mótfallinn.
Fundi slitið kl.18.10 ritari Gunnar örn