Stjórnarliðar í Fornbílaklúbb Íslands ætla um að leggja land undir fót og bregða sér norður til Akureyrar. 

Af þessu tilefni efnum við til myndasýningar og tökum spjall við félaga okkar á Norðurlandi í félagsheimili Bílaklúbbs Akureyrar, Hlíðarfjallsvegi 13, laugardaginn 23. nóvember kl 15:00.

Við hvetjum alla félaga okkar á Akureyri og í nágrenni til að koma, hitta stjórnina og fá að kynnast starfi okkar, ásamt því að sjá skemmtilega myndasýningu og pistil um gamla bíla. 

Stjórnin