Við ætlum í dagsferð á Akranes í svona ,,Njóta saman ferðalag“ laugardaginn 17. ágúst sem við köllum að þessu sinni ,,söfn og út að borða saman“. 

Á Akransei munum við heimsækja tvö merkileg söfn og annað þeirra er bílasafn. Við munum svo fá okkur svo veglegan síðdegissnæðing fyrir heimferðina. 

Veitingakostnaður í síðdegisverði er niðurgreiddur af Fornbílaklúbbnum fyrir þá félgsmenn sem fara með. 

Áætluð ferðatilhögun:  Lagt af stað frá Reykjavík í hópakstri  frá félagsheimilinu í Ögurhvarfi um kl 12:00 (félagsheimilið opnar um kl 11:15). Áætlað er að mæta á fyrra safnið á Akranesi um kl 13:00 og hið síðara um kl 15:00. Þegar klukkan er orðin 17:00 mætum við á veitingastað þar sem við munum borða saman góðan mat. Heimferð er svo frjáls að síðdegisverðinum loknum. Það verður því svolítið um fjálsan tíma inn á milli viðburða til að við getum notið þess að skoða bara það sem við viljum skoða sjálf og rúnnta um á Akranesi, eða semsagt, svipað fyrirkomulag og var í Vestmannaeyjum í fyrra. 

Hámark er á gestafjölda í matinn sem markast af því hvað veitingahúsið getur tekið á móti mörgum gestum.

Ferðakostnður sem greiðist af þeim sem fara með í ferðina er sem hér segir. 

  1. Veglegur kvöldverður fyrir félagsmann kostar 2.000,- kr og getur hver félagsmaður tekið með sér einn gest á sama verði. 
  2. Veglegur kvöldverður fyrir aðra gesti sem koma með félagsmanni kostar 3.000,- kr. og verð fyrir börn yngri en 12 ára sem koma með félagsmanni er 1.500,-
  3. Utanfélagsmenn geta komið með, en greiða þá fyrir veitingarnar sjálfir á veitingastaðnum samkvæmt hans gjaldskrá. 
  4. Félögum og gestum Fornbílaklúbbsins er boðið frítt að skoða bílasafnið, en á Byggðasafnið greiðir hver og einn fyrir sig og sína (fáum mögulega hópaafslátt ef þáttaka er næg). 

Skráningu í ferðina skal senda í tölvupósti á formaður@fornbill.is eða í síma 895-8195 og er skráningarfrestur til kl 24:00 þann 14. júlí n.k.

Enþá er hægt að skrá nokkra í viðbót í matinn. Við framlengjum því skráninguna til kl 20:00 fimmtudaginn 15. ágúst. 

Titill tölvupósts skal vera: Akranes. 

Eftirfarandi þarf að koma fram. 

  1. Bílnúmer og hvernig bíll
  2. Nafn félagsmanns og félaganúmer (ef þú mannst eða finnur númerið)
  3. Hversu margir og hverjir verða í matnum. (aldur barna sem ferðast með þarf að koma fram)

Endilega tökum þátt og njótum þess að skoða þessi fallegu söfn og bæjarfélag sem engan svíkur. 

Stjórnin

Skráning er hafin í ,,dagsferð og út að borða saman“ sem farin verður á Akranes 17. ágúst. Skráningu lýkur 14. ágúst. Sjá nánar á fornbill.is