Við ætlum að skunda á Mótormessuna í Reykholti í Borgarfirði. 

Þeir sem hafa áhuga á að aka saman í hóp í Borgarfjörðin á uppstigningardag 9. maí geta mætt við félagsheimilið okkar í Ögurhvarfi eigi síðar en kl 10:30. Við munum leggja af stað þaðan skömmu síðar og keyra sem leið liggur beint í Reykholt. Félagsheimilið opnar um kl 10:00 þarna um morgunin svo það sé mögulega hægt að grípa sér einn kaffibolla, fyrir þá sem það vilja, áður en við leggjum af stað. 

Öllum er líka frjálst að mæta beint í Reykholt, en Messan hefst klukkan 14:00 og eru allir hvattir til að mæta tímanlega til uppstyllingar fyrir utan kirkjuna. 

Stjórnin.