Þá er komið að kvöldrúnti, miðvikudaginn 28. ágúst, sem hefst við Hrafnistu í Laugarási.
Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu fyrir framan Hrafnistu í Laugarási (Ekið inn frá Brúnavegi).
Þar ætlum við að sýna vistmönnum bílana okkar í svolitla stund, en þaðan verður farið að því loknu í bíltúr sem enda mun uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi. Þar tekur á móti okkur kaffi og rjúkandi vöfflur og glæsilegur og mjög gamall fornbíll sem nýkominn er í salinn. Það er bíll sem ekki hefur komið fyrir auga margra okkur áður og ekki sést allengi. Sjón er sögu ríkari.
Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla.
Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með á bílasýningu, í vöfflukaffi og til að skoða stórglæsilegan grip. Missum ekki af þessum stórskemmtilega viðburði.
Allt bílaáhugafólk velkomið.
Stjórnin