Kvöldrúntur miðvikudagsins 4. september hefst við Marshallhúsið.
Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu fyrir framan Marshallhúsið úti á Granda.
Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr í gegnum miðbæ Reykjavíkur sem endar í uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma á fornbílum upp á ís frá nágrönnum okkar í Skalla.
Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla.
Opið verður í félagsheimilinu eftir bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45.
Við minnum á að í síðustu viku var settur í salinn okkar mjög fallegur Studebaker árgeð 1930 í salinn og um að gera fyrir þá sem ekki hafa séð gripinn að koma og skoða.
Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan síðasta ísbíltúr á þessu sumri.
Stjórnin