Miðvikudaginn 5. júní ætlum við á rúntinn og taka kaffispjall.

Mæting er við Hús verslunarinnar við Kringluna kl. 19:30. 

Lagt verður að stað þaðan í bíltúr skömmu síðar sem ætlað er að fari eitthvern hring um götur Reykjavíkur sem endar í kaffispjalli í félagsheimili okkar í Ögurhvafi. Félagsheimilið opnar þegar rúnturinn endar þar á bilinu kl. 20:30 – 20:45.

Ef bílar eru mjög margir eru gestir beðnir um að leggja bílum sínum fyrir aftan eða neðan við félagsheimilið af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla. 

Sjáumst hress með góða skapið.

Allt bílaáhugafólk velkomið. 

Umsjónamaður: Stefán Örn Stefánsson

Stjórnin.