Já þá er komið að kvöldrúnti, miðvikudaginn 26. júní, sem hefst við Háskólann í Reykjavík.
Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við hliðina á HR í Nauthólsvík (Menntavegi 1) (Sjá mynd)
Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr vestur í bæ og út á Granda, þaðan sem leið okkar liggur inn í Skútuvog 11, en þangað flutti Esso safnið nýlega og er búið að koma sér þar fyrir með glæsilegum hætti og við ætlum að fá að skoða það.
ATH.. Lokað verður í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi
Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan skemmtilega ísbíltúr.
Stjórnin