Já þá er komið að kvöldrúnti,  miðvikudaginn 10. júlí, sem hefst við Húsasmiðjuna í Grafarholti 

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á planinu hjá Húsasmiðjunni í Grafarholti (við Vínlandsleið í Reykjavík). 

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr, en leið okkar liggur austur að Geirlandi við Suðurlandsveg (rétt austur fyrir Hólmsheiði í landi Kópavogs) en þar búa Einar J Gíslason og hans frú hún Dyljá Eyjólfsdóttir sem ætla að taka á móti okkur og leyfa okkur að fá að skoða eitt og annað athygglisvert sem er að skoða þar og bjóða okkur upp á kaffiveitingar. 

ATH.. Lokað verður í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan skemmtilega bíltúr.  

Stjórnin