Kvöldrúnturinn miðvikudaginn 17. júlí, hefst við N1 á Ægissíðu.
Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við N1 bensínstöðina á Ægissíðu 102 í Reykjavík.
Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr sem leiðir okkur uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma á fornbílum upp á ís frá nágrönnum okkar í Skalla, en einnig verða hefðbundnar kaffiveitingar í boði fyrir þá sem það vilja.
Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla.
Opið verður í félagsheimilinu eftir bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45 sirka.
Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan skemmtilega ísbíltúr.
Stjórnin