Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum til stjórnar FBÍ fyrir 2024-2026.
Kjósa skal um þrjá stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn sem kosnir eru til eins árs.
Framboð og eða tillögur um lagabreytingar verða að berast kjörnefnd mánuði fyrir aðalfund sem haldin verður í félagsheimili Fornbílaklúbbsins að Ögurhvarfi 2 miðvikudagskvöldið 22. maí. Dagskrá fundarins verður auglýst þegar nær dregur.
Hægt er að senda inn framboð eða tillögur um lagabreytingar á formann kjörnefndar, Þorgeir Kjartansson torgeir66@gmail.com og eins í 899 0940