Kæru félagar.
 
Þann 27 júlí verður haldin bæjarhátíðinn Eldur í Húnaþingi og hafa staðahaldarar óskað eftir viðveru Fornbílaklúbbs Íslands. Á Hvammstanga er áhugi íbúa á fornbílum mikill og er meðal annars lítið einkasafn sem verður opið þannig að okkar félagsmenn geta skoðað. Þar er líka verslunarminjasafn/gallerí Bardúsa og nytjamarkaður. Til að vita hversu stórt svæði við þurfum þá er best að fara skáningar leiðinna. Hægt er að senda sms í síma 8651448 eða senda tölvupóst á netfangið hinriksdottir3@hotmail.com   fyrir kl 22:00 mánudaginn 22. júlí.  
Einnig er gott að vita ef einhverjir ætla að flytja bíla á staðinn á bílakerru/fluttningarbíl þá getum við gert ráð fyrir stoppi til að gera þá bíla tilbúna fyrir hópkeirslu inná Hvammstanga. 
 
Á Hvammstanga er kaupfélag sem er með allt til sölu og ef það er ekki til þá er líklegt að enginn þurfi á þeim hlut að halda, Þar er einnig Selasafn og veitingastaðurinn Sjávarborg. Mögulega verða félag eldriborgar með kaffisölu á þessum degi, en það á reyndar eftir að fá staðfestingu á því. Gert er ráð fyrir brottför úr Reykjavík um 8:30, en viðvera á Hvammstanga er áætluð til klukkan 17:00 og svo áætluð heimferð. 
 
Við vekjum athyggli á að veglengdin frá Reykjavík til Hvammstanga er nánast sú samam og frá Akureyri til Hvammstanga. Við hvetjum því félaga okkar á norðanverðu landinu og jafnvel víðar til að sameinast um að koma og hitta okkur í þessari ferð. 
 
Mjög góð þáttaka er í ferðina, en okkur langar að sjá enn fleiri og því framlengjum við skráningarfrestinn til 22. júlí. 
 
Hver vill koma með í stórskemmtilega dagsferð á norðvestur landið?