Stjórn Fornbílaklúbbsins hefur sett saman beinagrind af sumardagskrá og ákveðið fasta púnkta í dagskrá sumarsins.
Ætlunin er að hafa kvöldrúnt alla miðvikudaga fram til 25. september og verður upphafsstaðurinn ekki alltaf sá sami, en oftast verður endað í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þó svo að það verði ekki alltaf svo, því að við munum stundum fara í eitthverjar heimsóknir út í bæ. Rúntarnir verða auglýstir með dagskrá þeirra eigi síðar en á mánudagskvöldi fyrir rúntinn hér inn á fornbill.is og á facebook síðu klúbbsins.
Eftirfarandi ferðir hafa nú þegar verið ákveðnar og endilega takið þessa daga frá til að keyra með okkur.
17. júní. Þjóðhátíðarakstur með sýningu í Árbæjarsafni.
29. júní. Bíladella í Sigtúnsgarðinum á Selfossi í samstarfi við Bifreiðaklúbb Suðurlands.
7. júlí. Fornbílasýning og fatadagur í Árbæjarsafni í tilefni af 120 ára afmæli bílsins á Íslandi.
27. júlí. Dagsferð á bæjarhátíðina Eldur í Húnaþingi á Hvammstanga.
17. ágúst. Dagsferð. Safnaferð og kvöldverðarboð sumarsins á Akranes.
31. ágúst. Wings´n wheels á Tungubökkum í Mosfellsbæ.
Mögulega gerum við eitthvað meira, en nánari dagskrá þessara ferða verða birtar þegar nær þeim dregur.
Svo má alls ekki gleyma morgunkaffishittingnum okkar ,,Bílar og kaffi“ sem verða alla sunnudagsmorgna hjá Bakarameistaranum í Holtagörðum milli 9:00 og 11:00 fram í lok september.
Stjórnin