Þá er komið að bíókvöldi í Ögurhvarfi. Húsið opnar klukkan 20:00.
Á bíókvöldi númer 4 í röðinni þennan veturinn munum við taka til sýningar kvikmyndina The Getaway frá árinu 1972 sem fjallar um Fangelsaðan glæpamann sem neitað er um að fangelsisvist hans sé stytt og biður hann því eiginkonu sína um að leita allra ráða til að fá hann lausan. Það sem kom út úr því var kanski ekki alveg það sem honum vantaði, en lætur sig hafa það fyrir frelsið. Fljótt skipast veður í lofti og nú þarf hann ásamt konu sinni að flýja undan lagana vörðum. Töluvert er af flottum bílum í myndinni og því gaman fyrir fornbílaáhugafólk að sjá þessa mynd.
Í aðalhlutverkum eru þau Steve McQueen, sem er einna þekktastur er fyrir leik sinn í myndinni Bullit, en einnig þau Ali MacGraw og Ben Johnson
Sýning myndarinnar hefst um klukkan 20:15 og er sýningartími hennar um 123 mínútur. Boðið verður upp á popp og gos, sem og kaffi fyrir þá sem það vilja. Gert verður stutt hlé ef þurfa þykir.
Endilega fjölmennum og eigum gott bíókvöld með félögunum í Ögurhvarfi.
Stikla myndarinnar: The Getaway (1972) Trailer | Steve McQueen | Ali MacGraw
Myndin verður sýnd hjá okkur með íslenskum texta.
Stjórnin