Okkur hefur verið boðið í bílamessu.

Félögum í Fornbílaklúbbi Íslands ásamt mörgu öðru bílaáhugafólki hefur verið boðið að taka þátt í bílamessu sem haldin verður í Innri-Njarðvíkukirkju sunnudaginn 25.ágúst kl.20.00. nk. Kirkjan er staðsett við Njarðvíkurbraut 38 í Reykjanesbæ.

Þar verður öllum áhugamönnum um bifreiðar boðið að fjölmennna. Þetta er hluti af Sumarmessur á Suðurnesjum og boðað til hennar af Baldri Rafni Sigurðssyni, sóknarpresti í Njarðvíkurprestakalli. 

Við tökum þessu boði fagnandi og hvetjum okkar félagsmenn og annað bílaáhugafólk til að mæta við kirkjuna um hálftíma fyrir athöfn, eða um kl 19:30.