Miðvikudaginn 7. ágúst ætlum við á rúntinn og taka kaffispjall.

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á planinu við Háskólann í Reykjavík

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr um miðborg Reykjavíkur sem enda mun uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi.

Opið verður í félagsheimilinu eftir bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 – 20:45 sirka. 

Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla. 

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með til að gera þetta skemmtilegann bíltúr.  

Stjórnin