Skoðunardagur Frumherja og Fornbílaklúbbs Íslands 2024.
Við gerum okkur glaðan dag og látum skoða djásnin okkar og hittumst og njótum laugardaginn 11.maí hjá Fumherja í Dalshrauni Hafnarfirði kl.09.00. Frumherji býður okkur í kaffi og pylsur. Skoðunargjald er 5.900kr. Munum að hafa félagsskírteinin okkar meðferðis.
ATH Þessi skoðunardagur er aðeins fyrir bíla undir 5000kg heildarþunga. Þeir sem eiga fornbíla sem eru þyngri en það er bent á að þeir geta farið með bíla sína á hvaða skoðunarstöð Frumherja sem er, sem skoðar stór ökutæki, í vikunni á eftir og notið sömu afsláttarkjara.
ATH Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins eða komast ekki þennan dag geta einnig mætt á sína skoðunarstöð vikuna á eftir, dagana 12-16 maí.
Stjórnin.